Thursday | May 04, 2006

Heilsukeppnin


Ég, Heimir, Hjalti og Magnús byrjðum í keppni á þriðjudaginn. Hún gengur út á það hver getur misst flest kíló á einum mánuði.
Vikuleg mæling fer fram í kjallaranum í sundhöll Selfoss hvern þriðjudag.

Við fyrstu mælingu var ég 103,2 og svo um kvöldið var ég orðinn 100,6 og ég reikna með því að þar hafi um það bil allt verið vökvatap.

Hreyfði mig á þriðjudaginn og ætla að hreyfa mig aftur í dag. Ég verð að viðurkenna að þetta er frekar erfitt fyrir mig. Ég get ekki borðað neitt óhollt eins og nammi sem er sérstaklega erfitt í prófatörninni, get ekki borðað sallöt, alvöru kók, pylsur, skyndibita og annað slíkt.

Lifi aðalega á skyr.is með ávöxtum, hafragraut og slíku. Mér finnst ég alltaf vera svangur og kvaldist þegar ég þurfti að ganga út í bakrí áðan en gat ekki keypt mér neitt af því sem var gott og þurfti þess í stað að fá mér skyr.is

En það eru bjartir punktar:
Maginn á mér minnkar ef ég borða aðeins minna og við það grennist ég.
Ég fæ dópamín eða eitthvað álíka þegar ég hreyfi mig og þá líður mér vel.
Ég grennist og kemst vonandi í kjörþyngd í lok sumars.
Ég kemst í gott form

Ef ég geri þetta ekki núna verð ég að gera þetta einhverntíman seinna þegar ég er orðinn "feitari" og það vil ég ekki. Frekar að kippa sér "í lag" á meðan að maður er bara með góðann vetrarforða en ekki orðinn feitur.

Jæja ég ætla að fara út á subway með mása núna, læra svo smá og fara í sund eða út að skokka og slaka svo á yfir námsbókunum þangað til ég fer að sofa
Posted by kkkson at 17:39:28 | Permanent Link | Comments (0) |

Sunday | April 23, 2006


create your own visited country map
Posted by kkkson at 02:54:45 | Permanent Link | Comments (0) |

Thursday | April 13, 2006

101 staðreynd um mig :D

101 staðreynd um mig ...
Posted by kkkson at 21:18:42 | Permanent Link | Comments (1) |

Thursday | March 30, 2006

Held bara að M&M sé eitt besta nammi sem ég hef smakkað.

Vill svo skemtilega til að ég er sá eini á heimilinu sem veit hvar það er og hef því hamstar það óspart í laumi.

 Maður verður að fara að passa sig....

 

Annars er ég kominn með vinnu hjá póstinum. Er enn í samningaviðræðum við þær um að fá að vera í útburði... það reddast :) 

Posted by kkkson at 20:08:52 | Permanent Link | Comments (0) |

Monday | March 13, 2006

Get bara skrifað titla !!!!

Posted by kkkson at 18:40:54 | Permanent Link | Comments (0) |

Friday | February 17, 2006

Var búinn að gleyma hvað KFC er gott
Posted by kkkson at 19:26:51 | Permanent Link | Comments (0) |

Sunday | January 29, 2006

Búinn að klára að þýða blog.com og fékk fyrir það árs áskrift að blog.com sem ég er helvíti sáttur með bara enda var þetta ekki svo mikið mál. Allskonar sniðugt dót hægt að gera eins og að ég get látið helminginn af efninu
Posted by kkkson at 02:44:55 | Permanent Link | Comments (0) |

Eg og poker er ekki snidugt

Komst að því áðan að ég er ömurlegur í póker. Einar, Marie, Heimir og Tryggvi komu áðan og spiluðu við okkur texas holdem eða eitthvað og ég skíttapaði. Ekki skemmtilegt það nema hvað að ég fann fullt af skemmtilegum bókum út á skrifstou hjá pabba sem mig langar að lesa. Tók tvær inn: Memorable quotes eftir Norman Vincent Peel og bók um ræðumennsku. Kannski mar fari bara að stúdera ræðumennskuna meira og lesa enn meira.
Posted by kkkson at 02:38:49 | Permanent Link | Comments (3) |

Thursday | January 19, 2006

Þýðingardagar

Er að vinna við að þýðingu á blog.com.

Ætli maður reyni ekki að klára það um helgina svo maður fái "borgað"
Fæ eins árs áskrift að blog.com sem er víst með einhverjum svaka fríðindum eða eitthvað.
skiptir ekki mestu. Bara gaman að gera þetta og heiður.

Er annars á fullu við að þýða hávamál fyrir íslenskuna en ég er svo langt á eftir að það er hlægilegt.

semsagt. miklir þýðingardagar hjá mér.....
Posted by kkkson at 23:01:36 | Permanent Link | Comments (0) |

Monday | January 09, 2006

Vá lélega mynd sem ég tók fyrir gærdaginn....
http://editor.blog.com/albums/photo/?photoid=486977&albumid=151169

Mun gera betur í dag og það er LOFORÐ. var eitthvað að reyna að bjarga því sem bjargað yrði með því að láta hana líta út fyrir að vera svaka gamla en því miður er hún enn jafn uhhh ömurleg :S
En svona er þetta bara þegar maður gleymir sér og tekur mynd um miðja nótt
Posted by kkkson at 21:02:13 | Permanent Link | Comments (0) |