Bandaríkin...
Var að hugleiða Bandaríkinn um daginn og einhvernveginn varð það aðalumræðuefni fjölskyldunnar á leiðinni heim úr jólaboði í gærkveldi.
Upp komu margar skemmtilegar spurningar og kenningar varðandi hegðun bandaríkjamanna og hátt hlutfall t.d. raðmorðingja og drápa almennt.
Kom t.d. í ljós að 5 % heimsins búa í Bandaríkjunum en 85% raðmorðingja í heiminum eru frá bandaríkjunum.
Einnig kom inn í umræðuna hveru ótrúlega margir eru drepnir með byssu í bandaríkjunum við og við veltum fyrir okkur afhverju þetta er svona eins og þetta er.
Upp komu margar skemmtilegar kenningar en mín kenning er þessi.
Að mínu mati er þetta í stórum dráttum samspil tveggja þátta.
a) rosalegt aðgengi að skotvopnum í bandaríkjunum
b) fyrirmynd yfirvalda.
Með fyrirmynd yfirvalda á ég við þau skilaboð sem þau senda þjóðinni.
Hvað er kennt í skólum? Bandarísk saga og nánast ekki neitt annað!
Nemendur læra t.d. lítið annað en bandaríska sögu í skólum og þeim er kennt að bandaríska þjóðin sé sú besta og allt sem við kemur bandaríkjunum sé best.
En svo ég komi aftur að þeim skilaboðum sem yfirvöld senda þjóðinni þá má horfa á landið í heild sinni og yfirvöld hennar sem foreldra og fólkið í landinu sem börnin.
Landið fer í stríð við önnur lönd þegar því sínist og tekur ekkert mark á boðum né bönnum sem þeim hafa verið sett.
Gera það sem þeim sýnist þar sem Bandaríkin eru besta þjóð í heimi sem er einhvern yfir aðra hafinn og síðast en ekki síst yfir reglur hafin.
Hvaða skilaboð sendir þetta út í þjóðfélagið?
Þetta fer frá því að vera: HÉR ERUM VIÐ, UM OKKUR, FRÁ OKKUR, TIL OKKAR (bandaríkin) og þegnar landins byrja að hugsa: hér er ég, um mig, frá mér, til mín.
Þeir læra það af yfirvöldum að þeir geti gert hvað sem þeir vilja. Mannslíf eru ekki metin mikils og manni á að standa á sama um Jón nágranna því það eina sem skiptir máli er maður sjálfur, manns eigin þjóð.
Samkennd með öðrum er engin og auga fyrir auga, tönn fyrir tönn lögmálið gildir oftar en ekki.
Þegar amerísk yfirvöld ráðast inn í t.d. írak án allra heimilda, falsa skjöl til að réttlæta sig, og fara gegn öllum boðum og bönnum vegna þess að þeir halda að þeir geti gert hvað sem er þá senda þau út sömu skilaboð til þegna landsins.
Hvað gerðu þau við lönd sem ekki studdu þau til innrásarinnar? Þau einfaldlega lögðu þau í einelti.
Tökum t.d. frakkland fyrir sem var lagt í einelti af bandarískum yfirvöldum og þjóðinni allri vegna þess að það studdi ekki innrásina.
Hugarfarið er svona: hér eru við um okkur frá okkur til okkar. Við gerum það okkur sýnist, þegar okkur sýnist og það segir okkur enginn hvað við eigum að gera eða eftir hvaða reglum við eigum að fara því við erum yfir þær hafin og ef þið mótmælið okkur þá eruð þið í djúpum skít.
ímyndið ykkur ef þetta hugarfar kemst í hendur borgaranna OG að ógleymdri byssueign bandaríkjamanna og aðgengi að skotvopnum.
Það versta er að þetta hugarfar er þegar komið í hendur borgaranna og afleiðingarnar eru að koma í ljós.

