Heilsukeppnin
Ég, Heimir, Hjalti og Magnús byrjðum í keppni á þriðjudaginn. Hún gengur út á það hver getur misst flest kíló á einum mánuði.
Vikuleg mæling fer fram í kjallaranum í sundhöll Selfoss hvern þriðjudag.
Við fyrstu mælingu var ég 103,2 og svo um kvöldið var ég orðinn 100,6 og ég reikna með því að þar hafi um það bil allt verið vökvatap.
Hreyfði mig á þriðjudaginn og ætla að hreyfa mig aftur í dag. Ég verð að viðurkenna að þetta er frekar erfitt fyrir mig. Ég get ekki borðað neitt óhollt eins og nammi sem er sérstaklega erfitt í prófatörninni, get ekki borðað sallöt, alvöru kók, pylsur, skyndibita og annað slíkt.
Lifi aðalega á skyr.is með ávöxtum, hafragraut og slíku. Mér finnst ég alltaf vera svangur og kvaldist þegar ég þurfti að ganga út í bakrí áðan en gat ekki keypt mér neitt af því sem var gott og þurfti þess í stað að fá mér skyr.is
En það eru bjartir punktar:
Maginn á mér minnkar ef ég borða aðeins minna og við það grennist ég.
Ég fæ dópamín eða eitthvað álíka þegar ég hreyfi mig og þá líður mér vel.
Ég grennist og kemst vonandi í kjörþyngd í lok sumars.
Ég kemst í gott form
Ef ég geri þetta ekki núna verð ég að gera þetta einhverntíman seinna þegar ég er orðinn "feitari" og það vil ég ekki. Frekar að kippa sér "í lag" á meðan að maður er bara með góðann vetrarforða en ekki orðinn feitur.
Jæja ég ætla að fara út á subway með mása núna, læra svo smá og fara í sund eða út að skokka og slaka svo á yfir námsbókunum þangað til ég fer að sofa

